Formáli
Leikurinn „Ljóð um holur“ er á vegum Colas á Íslandi, en umsjón og framkvæmd leiksins er í höndum Pipar\TBWA. Með því að senda inn ljóð í leikinn samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
1. Þátttaka
Leikurinn er öllum opinn og heimilt er að senda inn eins mörg ljóð og hver og einn kýs. Starfsfólk Colas, Pipar\TBWA og annarra aðstandenda leiksins mega taka þátt, en eru ekki gjaldgeng til vinninga.
2. Innsendingar og efnistök
Innsend ljóð skulu vera frumsamin af þeim sem sendir þau inn og mega ekki brjóta gegn höfundarrétti þriðja aðila. Óheimilt er að senda inn efni sem er meiðandi, móðgandi, ólöglegt eða á annan hátt ósæmilegt. Allar innsendingar fara í yfirferð og áskilja Colas og Pipar\TBWA sér rétt til að hafna birtingu, eða fjarlægja ljóð af vefnum hvenær sem er, án skýringa.
3. Birtingarréttur og hugverk
Þátttakandi heldur fullum höfundarrétti að sínu ljóði. Með innsendingu veitir þátttakandi þó Colas og Pipar\TBWA ótímabundið, óeinkaréttarlegt leyfi til að birta ljóðið á vefsvæðinu (ljod.kusk.is) og nýta það í markaðs- og kynningarefni tengdu leiknum, með eða án höfundarnafns, án endurgjalds.
4. Vinningar
Í hverri viku, á meðan leikurinn stendur yfir, er veitt eitt gjafabréf á veitingastað í gegnum Dineout.
- Vinningshafi er valinn af Colas.
- Haft verður samband við vinningshafa með tölvupósti á það netfang sem gefið var upp við innsendingu.
- Vinningshafi hefur 30 daga til að vitja vinningsins frá því að tilkynning er send út. Geri hann það ekki áskilur umsjónaraðili sér rétt til að velja nýjan vinningshafa.
- Ekki er hægt að framselja vinninginn eða skipta honum út fyrir reiðufé.
5. Persónuupplýsingar
Skráð netfang er einungis notað til að staðfesta innsendingu og hafa samband við vinningshafa. Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál og þeim er hvorki deilt né miðlað til þriðja aðila, að undanskildum þeim aðilum sem koma að afhendingu vinnings (t.d. Dineout).
6. Önnur ákvæði
Colas og Pipar\TBWA áskilja sér rétt til að breyta reglum eða skilmálum leiksins, eða fella hann niður komi upp ófyrirséðar ástæður, tæknigallar eða grunur um misnotkun. Ákvarðanir aðstandenda leiksins varðandi framkvæmd hans eru endanlegar.

